DermaDivine Collagen hylki
Það er alltaf að koma betur í ljós að Collagen töflur hafa jákvæð áhrif á líkamann og ekki aðeins fyrir húðina. Nýlegar læknisfræðilegar rannsóknir segja að sjúklingar með verki í liðum sýna framför í hreyfanleika og verkjameðferðar þegar Collagen er tekið inn. Rannsóknir hafa einnig sýnt að Collagen getur örvað vöxt nýrra brjóska í vefjum. Collagen er algengasta próteinið í líkamanum eða um það bil 33 prósent. Það er til staðar í beinum, liðum, vöðvum og öðrum bandvefum. Framleiðsla líkamans á collageni hægist eftir 20 ára aldur þess vegna er mælt með inntöku á Collageni. Collagen töflurnar innihalda amínósýrur sem hjálpa að halda collagen stigum í öldrun húðarinnar og aðstoða að endurbyggja húðina.
Laus húð, hárfínar línur, hrukkur, sólarblettir, aflitun húðar o.fl. eru allt merki um að líkami okkar og húðþekjan séu að eldast. Öflugir geislar sólarinnar geta skaðað húðina, þyngdarafl jarðarinnar er stöðugt að toga hana niður og erfðir eru okkur stundum óhagstæðar. Allt þetta veldur því að húðin hrukkast og sýnir merki um öldrun. Helsta ástæða öldrunarmerkja í húðinni er aldurstengdur skortur á collageni. Um og við 20 ára aldur fara collagen birgðir húðarinnar að minnka og það veldur því að húðin missir teygjanleika sinn, náttúrulegan raka og mýkt. Til að bæta úr þessu getur reynst vel að taka inn collagen.
Notkunarleiðbeiningar: