Grænar kaffibaunir/Grean coffee bean.
Grænt kaffi (Green Coffee) vísar til kaffibauna í hráu og óbrenndu formi en þær eru teknar og hreinsaðar, þurrkaðar, ristaðar, malaðar og síðan lagaðar í kaffi. Kaffið inniheldur hundruði efnisþátta sem hvert um sig hefur lyfjafræðileg áhrif á líkamann.
Kaffi er ein vinsælasta uppspretta af koffíni í heiminum, en áhrif drykkjarins á sykurstuðul og þyngdartap er hægt að rekja til annarra efnisþátta drykkjarins, þar á meðal efni sem heita chlorogenic acid, quinide, lignan og trigonelline sem öll hafa verið tengd við bætt efnaskipti fyrir glúkósa, að því er dýrarannsóknir hafa leitt í ljós.
Sýnt hefur verið fram á að efnið chlorogenic acid hafi hindrandi áhrif á ensím sem kallast glucose-6-phospatase, en það ensím framkallar sykurmyndun í lifrinni. Þar af leiðandi er mögulegt að inntaka á chlorogenic acid í gegnum kaffineyslu minnki líkur á sjúkdómum sem tengjast blóðsykri, eins og sykursýki.
Einnig er þetta efni mögulega orsökin fyrir því að kaffi vinnur að einhverju leyti gegn offitu. Ýmsar rannsóknir benda til þess að chlorogenic acid hægir á upptöku líkamans á fitu þegar við meltum mat, auk þess að virkja efnaskipti fyrir aukafitu. En því miður er kaffidrykkja ein og sér ekki sérlega góð uppspretta á chlorogenic acid. Þegar grænu kaffibauninrnar eru ristaðar missa þær verulegt magn af þessu efni. Af þessu leiðir að grænar kaffibaunir eru ein besta náttúrulega uppsprettan af chlorogenic acid.
Nýlegasta rannsóknin á grænum kaffibaunum var birt í Janúar 2012 í tímaritinu Diabetes, Metabolic Syndrome and Obesity. Í rannsókninni var fylgst með 16 einstaklingum sem allir mældust í ofþyngt miðað við BMI stuðulinn sem var yfir 25 hjá þeim öllum (til þess að tejast í kjörþyngd þarf BMI talan að vera á milli 18.5 og 25). Öllum 16 þátttakendum var gefið þykkni með chlorogenic acid sem unnið var úr grænum baunum í mismiklu magni (annað hvort 700 eða 1050 millígrömm á dag) í 12 vikur.
Þáttakendur rannsóknarinnar misstu að meðaltali 8,15 kg, sem gerði 10% af líkamsþyngd og 4.4% af líkamsfitu.
Notkunarleiðbeinigar: